Eitt sinn Týrari, ávallt Týrari!
Antisportistar
16.10.2007 22:11:13 / Hjálmar

Eyjaferð

Þá er maður kominn frá eyjum. Tók flugið seinni partinn á laugardag og flaug til baka í hádeginu í gær. Ákvað að koma á óvart í þetta skiptið og lét mömmu og pabba ekki vita að ég væri að koma, voru þau ansi ánægð þegar þau sáu peyjann koma inn úr dyragættinni:D

Þrátt fyrir stutt stopp þá hitti ég nánast alla þá sem skipta mig mestu máli:) Kvöldið byrjaði á því að ég kíkti til Ingimar og Ásu og var djúsað hjá þeim fram eftir kvöldi þangað til farið var á VV&B:D Þegar upp í Höll var komið var stefnan tekinn beint á dansgólfið þar sem Kristjana systir spændi upp parkettið með fimum danstöktum en hún hafði varið smá svæði fyrir peyjann með kjafti og klóm allt kvöldið:)

Stuttu eftir að VV&B hætti að spila var haldið heim á leið alone... eða hvað;)

Morguninn eftir vaknaði ég við grátur og svei mér þá ef það hafi ekki fylgt smá frekjuöskur með að hætti Valdísar Bylgju... Ég dreif mig á lappir og spurði mömmu af hverju þetta stafaði... jú litla ljónynjan fékk ekki meira tannkrem en góðu hófi gegnir:D

Læt þetta nægja í bili. Fjórar vikur þangað til síðasta prófinu í I hluta verðbréfamiðluninni líkur... usss hvað tíminn flýgir:S 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 21:15:54 / Hjálmar

Ussss

Kíkti á fótboltaæfingu í gær og almáttugur:!: Hélt að ég væri búinn að koma mér í ágætisform eftir öll útihlaupinn í haust en nei sko aldeilis ekki:( Er allur að drepast í líkamanum úr harðsperrum:S

En jæja styttist í loka fyrsta hluta verðbréfamiðluninnar:D 4 vikur og 6 dagar veiii:) Er ekki mikið að nenna þessu þótt þetta sé nú ekki leiðinlegt, reyndar misskemmtilegt. Maður á það nú til að vera misjafnlega upplagður í lærdóm eftir langan og erfiðann vinnudag ásamt því að eyða öllum sínum frítíma í lestur... Þori að veðja að þegar þessu er lokið þá verði maður alltaf að pæla hvað maður eigi að gera á kvöldin:S

En samt sem áður þá er nóg að hlakka til fram að jólum:D Um næstu helgi er verlsunarballið í eyjum, veit ekki hvort maður eigi að kíkja til eyja seinni parts laugardag eða eyða helginni í lærdóm:S Síðan eftir það er bara málið að massa verðbréfamiðluninna.

En nóvember verður ansi annasamur með starfsdegi Kaupþings helgina eftir síðasta próf og síðan jólahlaðborð í útibúinu þar sem maður er í nefnd og því um glæsilegasta jólahlaðborð sem um getur á þeim bænum:D

Jæja ætla að láta harðsperrurnar líða úr sér svo maður geti kíkt í ræktina í fyrramálið:D Hafiði heyrt það nýjasta... stöðugur straumur er nú í líkamsræktastöðvar landsins þar sem landinn ætlar að koma sér í form korteri fyrir jól... hmmm týpískir íslendingar:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 17:42:46 / Hjálmar

DVD kvöld

Eftir lærdómsríkan sunnudag síðastliðinn ákvað ég að taka mér DVD til að sofna yfir.

Fór út í sjoppu til að leigja mér mynd. Kom heim og gerði allt klárt fyrir mogundaginn, íþróttaföt og annað:) Lagðist upp í rúm með tölvuna fyrir framan mig á borði og undir sæng. Allt var klárt... nema að setja myndina í tölvuna og ýta á play:S Teygði mig í hulstrið og opnaði það:!: Viti menn, engin diskur í hulstrinu:(

 Það var nú óþarfi að gráta Jón bónda núna. Ákvað að sofna við ljúfa tóna útvarpsins en eftir smá stund var mér búið að snúast hugur og dreif mig í föt að skipta... Til að gera stutta sögu ennþá styttri kom ég heim og sofnaði ljúft... eftir u.þ.b 10 mínútur við spennandi atburðarás myndarinnar:D

Svona var nú þessi saga. En þessi vika, þvílikt brjál:S Búið að vera brjálað að gera í vinnunni. Átti að mæta í tíma í gærkvöldi en þar sem að ég var svo lengi í vinnunni þá tók ég þá ákvörðun að mæta í tíma í kvöld þar sem að tveir hópar í gangi, fyrri hópurinn á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum en sá seinni á miðvvikudagskvöldum og laugardagsmorgnum. En viti menn, þurfti að vinna smá frameftir og þar sem að tíminn byrjar kl:17 hundruð þá sleppti ég tíma og ætla að lesa heima í staðinn fyrir að mæta kl:18 hundruð. Redda mér síðan glósum úr tímanum hjá samnemendum:D

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 17:40:00 / Hjálmar

Helgin á enda komin...

Þá er kominn sunnudagseftirmiðdegi og helgin á enda! Heil vinnuvika framundan ásamt lærdómi og aftur lærdómi. Já svona verður þetta næstu vikurnar:)

Helgin byrjaði með pompi og prakt (segir maður það annars ekki?? ) með því að bruna beint eftir vinnu niður í bóksölu stúdenta að kaupa fáeinar bækur. Föstudagskvöldið síðan tekinn í hraðlestur.

Laugardagurinn fór allur í starfsdag viðskiptanbankasviðs Kaupþings þar sem margt skemmtilegt kom í ljós og var gert:D Kvöldið fór svo í en einn hraðlesturinn og síðan heitt spjall við eina vinkonu um samskipti og ekki samskipti kynjanna:S Spjallið endaði reyndar með tárum vinkonunnar að mér skildist (hef ekki staðfestar heimildir fyrir tárunum) en vona að ég hafi ekki sært einn né neinn með hreinskilni minni:) Sannleikurinn getur víst verið sár, en þarf reyndar ekki að vera sannleikur þótt mér finnist eitt og annað... en jæja ekki orð um það meira:S

Sunnudagurinn... hmmm já blessaðir sunnudagar:!: Einhversstaðar stendur að maður eigi að hvíla sig á sunnudögum, og kannski engin furða að mér finnist sunnudagar leiðilegustu dagar vikunnar oft á tíðum. Allt í lágmarki og lítið sem ekkert að ske. En hver er sinnar gæfu smiður er víst sagt og ætli það sé ekki hægt að heimafæra það upp það maður verði þá að hafa ofann af sér sjálfum:D

Ætlaði að taka daginn alveg eld snemma, útihlaup kl:7, morgunmatur og síðan lesa blöðin á netinu og vafra smá þangað til að ég færi að læra kl:9! Einhverra hluta vegna þá hef ég átt í vandræðum með að koma mér framúr rúmminu alveg síðan síðasta þriðjudag. Veit ekki afhverju satt best að segja en þetta hafa verið átakanlegar stundir fyrir mína parta:( Endaði á því að drulla mér framúr í morgun kl:9 og læra kl:10... eða svona u.þ.b:S

Morgunhlaupið farið út um þúfur og klukkutíma á eftir í lærdóm:( En jæja þetta fór bara eins og það fór þannig að ég þurfti bara að taka á honum stóra mínum og byrja að læra. Er búinn að vera læra nánast í allann dag og stefni á útihlaup upp úr 19 hundruð. Þannig að sunnudagurinn ætti að enda nokkurn veginn eins og ég lagði upp með, bara ekki í réttri tímaröð:D

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 19:02:55 / Hjálmar

Helgi

Er það ég eða finnst mér eins og ég hafi verið að blogga um að helgin væri komin í gær??:S

En jæja það er allavega komin helgi en og aftur:!: Býst ekki við að gera mikið um helgina nema bara læra, og svoleiðis verður það næstu vikurnar, veit ekki einusinni hvort ég komist til eyja um miðjan okt til að mæta á V.V.B ball:( En ég sé til:)

En að lærdómnum, ekki veit ég hvað ég er búinn að koma mér, almáttugur hvað er mikið að lesa í þessarri verðbréfamiðlun:S En það þýðir ekkert að tala um það, búinn að koma mér í þessa stöðu og þá klára ég það með stæl og gott betur:D

Reyndar fer helgin ekki alveg öll í lærdóm. Er að fara á starfsdag Kaupþings á morgun sem mun taka allann daginn:) Verður eflaust gaman en ég komast ekki í fyrra vegna eyjaferðar. Man reyndar ekki hvað var um að vera þessa helgi í eyjum en allavega fór ég og hafði gaman að:)

En það er komið að því að fara í sturtu og síðan lesa í allt kvöld... tjá;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 20:54:44 / Hjálmar

Hva, peyjinn bara hættur að blogga...

... nei sko aldeilis ekki:D

 Þá er þessi helgi liðin með öllum sínum skemmtileg heitum:) Kíkti aðeins út á lífið á laugardaginn, skellti mér á Papa-ball á Nasa. Ekki neitt voðalega margt um manninn en þó bara svona passlegt. Voru þó nokkrir 2 metra villikettir sem settu svip sinn á dansgólfið sem endaði með því að það varð mikið mannfall og allir ofan á Sigrúnu kelluna hans Smára:( Henni varð nú ekki meint af þessu skvísan, sem betur fer:!: En þessir kiðlingar hefðu samt sem áður mátt aaaaðeins róa sig í dansinum:)

En nóg um það, fór nú sjálfur snemma af ballinu og kíkti aðeins á Döbbliners í smá "hitting" eins og þeir segja:) Kvöldið endaði svo á stuttu stoppi í vöfluvagninum og síðan komið við á Hlölla áður en haldið var í áttinu að leigubílaskýlinu og heim á leið:D

 En framundan er bara lærdómur á lærdóm ofann, enda búinn að dragast alltof mikið aftur úr í lestrinum en býst nú við að ná því upp og vel það:D

Ég fattaði síðan á laugardaginn sl. að það eru/voru akkúrat 12 vikur þangað til að maður fari heim í heiðardalinn í jólafrí (taldi það nú ekki nákvæmt á dagatalinu, en held mig samt við þessar 12 vikur á þeim tíma:D ). Og þá verður sko slappað af í faðmi fjölskyldunnar... mmmmm;)

Jæja þarf að fara skippuleggja lesturinn. Heyri í ykkur seinna:D

Peyjinn is out;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 18:58:46 / Hjálmar

Helgi

Jæja þá er komin helgi.

Var búinn óvenju snemma í vinnu í dag, var kominn heim kl:17:) En plan helgarinnar er frekar þéttskipað. Kvöldið í kvöld fer í lærdóm, þarf að fara að byrja að lesa í verðbréfamiðluninni:S Morgundagurinn byrjar svo á ræktinni og síðan strax í vinnu eftir það:) Annaðkvöld fer ég svo í afmæli til hennar Hjördísar en hún varð 25 ára í vikunni, til hamingju með það kelling:D Á sunnudaginn er svo stórleikur Unted og Chelsea, ætli maður kíki ekki með kallinum honum pabba á einhvern pöbb til að sjá mitt lið fara með sigur á hólmi. Síðan er ég að velta fyrir mér hvort ég eigi að kíkja á FH - Val þar sem maður er nú orðinn hálfgerður Hafnfirðingur;) Nema maður kíki með honum Smára í Kópavoginn á HK - Breiðablik... sjáum til:)

En jæja ætla að fara út að skokka og eftir það lærdómur... nema maður dobbli einhvern með sér í bíó og fresti lærdómnum aaaaðeins lengur:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 21:40:34 / Hjálmar

Hmmmmm

Hvað er þetta með mann að nenna ekki neinu. Nú er ég byrjaður í skólanum og nenni ekki að koma mér að læra, já eða lesa því að það er hellingur af lesefni í þessarri verðbréfamiðlun!

En ég kom heim í gær þegar klukkann var að verða 22 hundruð, en ég fór út úr húsi 6 um morguni:S Svona var dagurinn hjá mér: Vaknaði rúmlega hálf sex og fór í ræktin. Var síðan í vinnu til hálf fimm. Dreif mig þá í skólann til 21 hundruð. Þegar honum lauk þurfti ég að fara og ná í vetrardekkin mín heim til Hjördísar:)

Já það er gott að keyra sig út:D 


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 22:39:10 / Hjálmar

Hellú

Jæja ætti maður ekki að fara starta þessu að einhverju viti:) Ég sé að það voru nú frekar miklar undirtektir við síðustu færslu hjá mér... já eða ekki neinar. Býst nú ekki við að ykkur sé alveg sama heldur að... já veit ekki;) En jæja þá er maður byrjaður í skóla aftur:!: Ákvað að skella mér í verðbréfamiðlunina við HR og var fyrsti tíminn s.l þriðjudag. Námið skiptist semsagt í 3 hluta og þar sem að ég er kominn með viðskiptaplebba prófið þá þarf ég bara að taka fyrsta og þriðja hlutann:)Fyrsti hlutinn er lögfræði og öllu sem því fylgir. Hef heyrt að þetta sé asskoti erfiður partur af náminu og var/er ég nokkuð smeikur við þennan hluta þar sem að ég rétt marði lögfræði námskeiðið í HR á sínum tíma:S En maður verður víst að skora á sjálfann sig til að þróast ekki satt?Einnig hef ég verið að gera upp við mig að undanförnu hvar ég eigi að taka masterinn. Stefnan er tekinn út í heim og eins og staðan er í dag þá er ég kominn með tvo skóla í London í gjörgæslu:) En þar með er sagan ekki sögð. Ég hef nú líka pælt í hvort ég eigi að taka masterinn hérna heima líka. En HR bíður upp á afar spennandi nám í Investment Management, en þetta er svona nokkurn vegin það sem mig langar til að sérhæfa mig í:D En jæja læt þetta nægja í bili...

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 23:58:15 / Hjálmar

Góðann daginn hvernig er maginn:)

Já þessa setningu fæ ég á hverjum morgni í vinnunni áður en boltaspjallið byrjar:D En langt síðan ég bloggaði síðast eða heilir... óþarfi eitthvað vera að tíunda það hér:!:

 En jæja, allt gott að frétta af mér. Er búinn að vera bralla ansi margt síðan síðast eða svoleiðis. Það helsta er að ég kíkti til London og Manschester í lok maí. Fór á fimmtudagsmorgun og kom til baka á mánudagskvöld. Þreytti frumraun mína í ensku deildinni og heimsótti mekka fótboltans... Old Trafford. Fyndið samt að mig var búið að dreyma nokkrum mánuðum áður að ég væri á OT og viti menn sýnin sem ég sá í draumnum þegar ég fór upp í stúku var nánast alveg eins og þegar ég fór á staðinn:S Skrýtin tilfinning:)

 Ætla nú ekki að fara nánar út í ferðina nema bara mikið gaman og mikið fjör:D Annar er ég að velta fyrir mér hvort ég eigi að skella mér til eyja næstu helgi á goslokin. Er að vinna á laugardeginum og þyrfti því að taka bakka eða Herjólf um kvöldið. Ætli það verði bara ekki ofann á að ég verði í bænum og geri eitthvað sniðugt þar þessa gosloka helgi, en við sjáum til.

 Annað sem ég er búinn að velta fyrir mér er varðandi þetta blogg:) Þá er ég að spá í hvort maður eigi að vera að þessu lengur! Annar valmöguleikinn er sá að halda áfram og blogga þá daglega eða annan hvern dag, sé samt ekki fram á að geta það vegna anna:S En þriðji möguleikinn er sá að blogga kannski vikulega. Vera þá bara með einhverja létta og skemmtilega pistla og stiklað á stóru það sem hefur gerst í vikunni.

Þetta eru miklar og stórar pælingar en trúið mér að peyjinn er mikið að pæla þessa daganna, en stefni á að vera búinn að ganga frá öllum lausum endum fyrir sumarfrí:) Og pælið í því, byrja í sumarfríi miðvikudag fyrir þjóðhátíð er síðan að spá í að fara út í heim eftir hana í tvær vikur:D Og þegar ég kem til landsins aftur þá á ég enn þá um 10 daga eftir í fríi:S

 Jæja læt heyra í mér seinna....

Ps. Las yfir textann og viti menn... engin brandari, þetta er ekki peyjinn sem við þekkjum. Greinilega kominn úr æfingu hver bað um svæfingu hehehe....;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 12:53:13 / Hjálmar

Hey þú....

Jæja krakkar mínir. Það er nú ansi langt um liðið:!: Veit ekki hvað þetta er, en maður getur verið frekar latur við að blogga. Hef reyndar ekki tölvu heima og get ekki bloggað í vinnunni, alltof miki að gera;)

Kíkti aðeins á djammið í gær með vinnufélögunum. Byrjuðum kvöldið á að far út að borða á Carrusso (ath stafsetninguna) og þrömmuðum svo á haustfagnað KB Banka á Nordica hótel. Ansi mikið stuð, fullt af skvísum og.... bjór:haha:

Annars er annað djamm í kvöld. Nú er það hinn eða gamli vinnustaðurinn. Ætlum eitthvert út að borða og síðan trallað fram eftir nóttu.

Nóg í bili, vil ekki fá harðar sperrur í puttanna á morgun. Reyni að vera duglegri hér eftir að blogga....;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 21:33:53 / Hjálmar

Góða kvöldið

Jæja ætti maður ekki að fara að vekja þetta blogg til lífsins. Hef ekki nennt að blogga síðustu vikurnar... eða kannski mánuði:haha:

Allavega er frábært í nýju vinnunni hjá KB banka. Fullt af hressu fóli og fín stemning:) En pælið úi því, sumarið er að vera búið:!: Eða svo gott sem. Ég fer til eyja næstu helgi á goslokin, síðan eftir það eru hvað... 3 helgar í þjóðhátíð? Allavega fannst mér Júni alveg asskoti fljótur að líða:!:

En þá er komið að segja frá helginni:S Tók því rólega á föstudagskvöldið, enda þurfti að vinna smá á laugardags morgun. En það átti að taka á því í gærkvöldi. Ætla bara að gera langa sögu stutta að partýið sem ég ætlaði í datt upp fyrir, ég og Þói ákváðum þá að vera bara hérna heima og fara snemma í bæinn. Guðni kom og drakk með okkur oooog ég sofnaðu og fór ekki í bæinn:( Ein slappasta drykkju frammistaða sem ég hef orðið vitni af... eða nei varð ekki vitni af henni. Ég var þáttakandinn og sá sem sofnaði:klikk: Svei mér þá, ég á skilið að vera flengdur á berann bossann fyrir þetta... einhver:$

Jæja það kemur helgi eftir þessa býst ég við og ætli það verði bara ekki teknar einhverja andvöku töflur á næsta djammi:haha:

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 11:00:58 / Hjálmar

Hædí...

Jæja þá er fyrsta vikan í vinnunni búinm, var reyndar bara 3 daga:haha:

En það er mikið að læra, svo mikið að ég var bara nokkuð þreyttur eftir fyrsta daginn:S Verð samt á námskeiðum í næstu viku þannig að maður hlítur að læra eitthvað á því;)

En nú er komin helgi og styttist nú aldeilis í júróvision:!: Er að pæla að skella mér til eyja þá, nenni ekki að djamma hérna í bænum... allstaðar röð og læti:haha:

Jæja er í vinnu núna, ætla að halda áfram að þræla mér út...;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 16:53:44 / Hjálmar

kominn með vinnu!

Sælir kæru vinir, nær og fjær;)

Fór í atvinnuviðtal í dag og gekk líka þetta þrusu vel:!: Eiginlega það vel að það var hringt í mig 11 mínútum eftir að ég var búinn í viðtalinu og mér boðin vinna:haha:

Hvar ætli peyjinn hafi fengið vinnu, jú hjá KB banka:) Hafnarfjarðar útibúi nánar tiltekið;)

Ætlaði bara að láta ykkur vita af þessu:haha: Læt heyra í mér meira á næstunni með frekari uppklýsingar...

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 18:34:14 / Hjálmar

Ég fer í fríð...

Svei mér þá ef sumarið sé bara ekki mætt til Íslands:haha: Búið að vera sól hérna í höfuðborginni í dag, samt smá kuldi ennþá en þetta verður fínt um páskanna;)

Talandi um páskanna, rétt upp hend sem ætla heim þá (þ.e til eyja)... mín hendi er uppi allavega:) Verður nú nokkuð gott að komast í dekur húsið hennar mömmu. En ég á það orðið til að kalla það "mömmu spa and home cooking":haha: Verður allavega fínt að slappa af í nokkra daga:)

Helgin framundan, og ég að spá í að detta í það:!: Kæmi mér ekki á óvart ef Hjördís myndi froðufella þegar hún les þetta en það er náttla bara hún;) En það er kveðju partý á laugardaginn hjá Pósthúsinu þar sem að yfirmaður minn var að hætta:haha: Eða reyndar:(

Kjósið í nýju könnuninni, þangað til næst.... Johnson is out;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13