Eitt sinn Týrari, ávallt Týrari!
Antisportistar
16.10.2007 22:11:13 / Hjálmar

Eyjaferð

Þá er maður kominn frá eyjum. Tók flugið seinni partinn á laugardag og flaug til baka í hádeginu í gær. Ákvað að koma á óvart í þetta skiptið og lét mömmu og pabba ekki vita að ég væri að koma, voru þau ansi ánægð þegar þau sáu peyjann koma inn úr dyragættinni:D

Þrátt fyrir stutt stopp þá hitti ég nánast alla þá sem skipta mig mestu máli:) Kvöldið byrjaði á því að ég kíkti til Ingimar og Ásu og var djúsað hjá þeim fram eftir kvöldi þangað til farið var á VV&B:D Þegar upp í Höll var komið var stefnan tekinn beint á dansgólfið þar sem Kristjana systir spændi upp parkettið með fimum danstöktum en hún hafði varið smá svæði fyrir peyjann með kjafti og klóm allt kvöldið:)

Stuttu eftir að VV&B hætti að spila var haldið heim á leið alone... eða hvað;)

Morguninn eftir vaknaði ég við grátur og svei mér þá ef það hafi ekki fylgt smá frekjuöskur með að hætti Valdísar Bylgju... Ég dreif mig á lappir og spurði mömmu af hverju þetta stafaði... jú litla ljónynjan fékk ekki meira tannkrem en góðu hófi gegnir:D

Læt þetta nægja í bili. Fjórar vikur þangað til síðasta prófinu í I hluta verðbréfamiðluninni líkur... usss hvað tíminn flýgir:S 

Stefanía skrifaði
Takk fyrir innlitið þó stutt væri. Vonandi ertu búinn að fyrirgefa mér að hafa ekki verið svo á ballinu þegar þú komst En hvaða gella var þetta sem þú fórst með heim alone..... eða ekki ???

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.