Eitt sinn Týrari, ávallt Týrari!
Antisportistar
13.2.2008 05:14:37 / Hjálmar

Halló

Jæja ætti maður ekki að fara starta þessu að einhverju viti:)

 Ég sé að það voru nú frekar miklar undirtektir við síðustu færslu hjá mér... já eða ekki neinar. Býst nú ekki við að ykkur sé alveg sama heldur að... já veit ekki;)

 En jæja þá er maður byrjaður í skóla aftur:!: Ákvað að skella mér í verðbréfamiðlunina við HR og var fyrsti tíminn s.l þriðjudag. Námið skiptist semsagt í 3 hluta og þar sem að ég er kominn með viðskiptaplebba prófið þá þarf ég bara að taka fyrsta og þriðja hlutann:)

Fyrsti hlutinn er lögfræði og öllu sem því fylgir. Hef heyrt að þetta sé asskoti erfiður partur af náminu og var/er ég nokkuð smeikur við þennan hluta þar sem að ég rétt marði lögfræði námskeiðið í HR á sínum tíma:S En maður verður víst að skora á sjálfann sig til að þróast ekki satt?

Einnig hef ég verið að gera upp við mig að undanförnu hvar ég eigi að taka masterinn. Stefnan er tekinn út í heim og eins og staðan er í dag þá er ég kominn með tvo skóla í London í gjörgæslu:) En þar með er sagan ekki sögð. Ég hef nú líka pælt í hvort ég eigi að taka masterinn hérna heima líka. En HR bíður upp á afar spennandi nám í Investment Management, en þetta er svona nokkurn vegin það sem mig langar til að sérhæfa mig í:D 

En jæja læt þetta nægja í bili...